Sýningin ’Þetta er allt’ er um málverkið. Í Gallerí Port eru 20 olíumálverk á striga, unnin 2019 – 2020. Öll verkin hafa það sameiginlegt að fjalla ekki um annað en upplifunina.
Hér er engin saga og ekki unnið út frá formi eða uppbyggingu heldur kallar litur eftir næsta lit. Stundum verður úr því litleysa þegar leysiefnin fá litina til að renna og kúldrast saman, þar til verkið segir sjálft að það er tilbúið. Best er að hætta rétt áður en það verður öruggt. Hér er engin hugmynd önnur en sú að treysta, vaða áfram og gera það sem manni sýnist. Að sjá fegurðina í því sem maður kallaði áður mistök er negla eins og Árni í Port myndi segja. Það er ekki hægt að sleppa tökunum nema vita hvað það er að hafa stjórn. Hér er allri uppsafnaðri reynslu og færni áranna sleppt lausri, ekki af því að allt sem maður hefur lært er ómögulegt. Það er bara komið að þessu. Þetta er allt.