About
Kristín útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og fór þá beint í framhaldsnám til Ítalíu. Þar lærði hún m.a. íkonagerð í klaustri í Róm og stundaði nám í Ríkisakademíunni í Flórens árin 1988-1993. Kristín hefur síðustu 15 árin haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum sýningum, hér heima og erlendis. Hún hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar og hlotið nokkrum sinnum listamannalaun frá Menntamálaráðuneytinu, síðast árið 2009. Hún hefur verið valin bæjarlistamaður Akureyrar og einnig bæjarlistamaður Seltjarnarness 2008. Eftir Kristínu má finna verk í eigu helstu listasafna
landsins, opinberra stofnana, kirkna, m.a. sem altaristöflur og fjölda einstaklinga.
Verk Kristínar hafa gegnum tíðina verið aðallega stór málverk á striga, eggtemperur á tré, íkonar og teikningar. Námsárin voru lituð af áherslum samtímalistar og minimalisminn var allsráðandi. Sunnar í álfunni kynntist Kristín ólíkum stefnum og svo varð að tækni og hugmyndaheimur miðevrópskrar miðaldahefðar varð sá skóli sem hafði einna mest mótunaráhrif á hana. Djúpstæður áhugi á dýpt vitundarinnar hefur verið undirliggjandi tónn í verkum hennar, aðskilnaður mannsins við Guð, einsemd hans og leit.
Undanfarið hefur Kristín leitað nýrra leiða til að opna myndheim sinn.
Á sýningunni “Veggteppi” í sal Íslenskar Grafíkur sýnir Kristín nýja hlið á myndmáli sínu.
Í stað fínlegra vinnubragða og fágunar eggtemperunnar þar sem móðir og barn hefur verið í öndvegi, tekur nú við sprengikraftur og hrárri tjáning þar sem líf konunnar er sýnt frá annari hlið. Þessi þróun birtist í stórgerðri teikningu sem útsaumur í stórum lopastrikum á grófum striga.
Það er ekki ólíklegt að í framtíðinni sameinist þessi óheftaðri tjáningaraðferð hinum öguðu vinnubrögðum málverksins sem Kristín
hefur verið hvað þekktust fyrir og að svið himins og jarðar mætist og hin ólíku öfl takist í hendur…
Næsta fyrirhugaða sýning Kristínar verður í Studio Stafni, Ingólfsstræti 8, um miðjan október næstkomandi.
Þar mun hún aðallega sýna verk unnin með eggtemperu á tré.